♥..Skutlurnar..♥

11.09.2007 14:22:15 / skutlurnar

Hættar !!

Erum hættar með þessa síðu!! .... erum að vinna í því að gera nýja ;)... gefum upp slóðina síðar :)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 15:59:14 / skutlurnar

Bloggedíblogg

Þar sem mér leiðist alveg hrikalega og hef ekkert að gera ætla ég að henda hérna inn smá bloggi J.. kannski líka bara kominn tími á það...... ?

En eins og flestir þá er ég byrjuð á fullu í skólanum og eru kennarar strax farnir að henda í mann allskyns verkefnum og prófum ! :/.... ætla að vera rosa dugleg þess önnina og taka 25 einingar, 19 í fsu og svo 2 fög í fjarnám J... ætla að reyna að klára þetta sem fyrst bara ;)

Í síðustu viku var svokölluð busavígsla, get nú ekki sagt að hún hafi verið upp á sitt besta. En ballið bætti það svo sannarlega upp :D... það var nottla bara geðveikt ! held ég hafi bara aldrei farið á jafn skemmtilegt fsu ball, Palli var geggjaður ;D !

Í dag var frí í skólanum en ég þurfti samt sem áður að fara á fætur rétt fyrir 7 og passa 9 mánaða frænku mína, en hún var svo mikill engill og svaf bara þannig við sváfum mest megnis allan morguninn J..... helgin komin (loksins) og eru engin svakaleg plön, vinna á morgun í brúðkaupi og passa um kvöldið J... svo var planið að kíkja í bíó með Rúnari í kvöld en líklegast verður ekkert úr því !...       

Það sem er framundan hjá mér er að ég er að fara út til Liverpool í lok október að horfa á mitt lið rasskella Arsenal :D.... svo pantaði mamma vikuferð um daginn til Tenerife um páskana :P ætluðum að vera lengur en bara allt orðið uppselt :/.. en fínt að komast aðeins út í sólina J....

Ætla að segja þetta gott.... spá í að leggja mig smá :P..

Kv. Kristín ;)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 17:29:56 / skutlurnar

!!!!!!!

Djamm!!!:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 14:26:08 / skutlurnar

!!!!!

Þúúú !!! 8)

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 19:57:41 / skutlurnar

blogg

Bloggleysið hérna ekki alveg að gera sig ! Má alveg segja að þessi síða er alveg að deyja út einfaldlega útaf því að við erum alltaf á fullu að gera eitthvað.. 

Allavena ákvað ég að henda nokkrum orðum hérna á þetta blogg. Ég Ragna og Kristín fórum saman til Danmerkur í Ágúst og var það hreint frábært. Eyddum 6 dögum í að versla og gera eitthvað crazy skemmtilegt:)

 -         löbbuðum strikið hvern einasta dag- 

        hvert einasta kvöld líka- 

        borðuðum núðlur úr RIMA 1000-  

       Fórum á kínverskan veitingastað 2x-    

     Fórum í tívóli-  

       Mikið var gargað þar og var röddin orðin frekar dauf-   

      Hittum Elmu-   

      Sáum sjúkan strák sem vann í solid- 

        Versluðum í Fields-   

      Kristín fór af kostum-  

       Gystum á sjúku gystiheimili sem við söknum sárt-  

       Láum í sólbaði á risa svölum á gystiheimilinu-

         Fórum á ströndina-  

       Hittum róna-    

     Rákumst á gamla ljóta spila kalla, one – two- three-where is the ball-      

   Tókum crazy margar myndir líka

   Allavena er þetta svona það mesta sem við gerðum í Danmörku og var þetta ein sú besta utanlandsferð sem ég hef farið í og hef aldrei eytt svona miklu money.! 8| Komum svo heim seint 18 Ágúst og ég kíkti aðeins á menningarnótt sem var alveg ótrúlega gaman og alveg stappað af fólki á öllum skemmtistöðum! 

Eins og kannski flestir vita þá eru allir skólarnir byrjaðir og mikið spennufall hjá busunum býst ég við, það var allavega þannig þegar ég var busi ! bara stuð að byrja í nýjum skóla og kynnast nýju frábæru fólki. Ég hef ekki ennþá fengið að fara í skólan og verður það ekki fyrr en í næstu viku, var svo heppin að ég þurfti að fara í kírtlatöku síðasta fimmtudag þannig ég verð að liggja eins og klessa uppí rúmi og horfa á tv. Svaf eina nótt á spítalanum og get ég sagt það að ég sárvorkenni gamla fólkinu sem þarf að dúsa þarna í marga daga ! Annars er ég bara búin að hafa það ágætt hérna heima má reyndar ekkert borða þannig að ég hugsa aðallega um feita pítsu sem ég mun panta mér leið og ég get !! :haha: 

Farin að gera ekki neitt 

Ble


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 15:39:21 / skutlurnar

Menningarnótt

Ætla ekki allar á Menningarnótt ????... ég og Hanna ætlum að koma beint eftir flug :P..  vonumst til að sjá ykkur allar ;)..

Kv. Kristín ;)

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 17:09:53 / skutlurnar

Jæja...:)

Þá eu myndirnar komnar inná síðuna mína:D
 
Unnur:) 

» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 17:20:53 / skutlurnar

Danmörk

  15 tímar:haha:

 Jæja elskurnar mínar Ég og Ragna erum á leiðinni til Danmerkur og hitta hana Kristínu okkar.Hafi þið það æðislega gott á klakanum og hlakka svo til að sjá ykkur allar á Menningarnótt næstu helgi :haha: 

Hérna verðum við pottþétt alla daga og hlakka ég mjööög til :lol:

 

 

Geri passlega ráð fyrir því að ég sjái þig á ballinu í kvöld UNNUR;)

 

bææææ


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 21:04:33 / skutlurnar

Myndir!

Var að setja myndir frá Verslunarmannahelginni inná síðuna mína...

 

www.123.is/unnur89


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2007 10:06:12 / skutlurnar

DK :D

Jæææja þá er mín farin til DK :D... svo sé ég ykkur, Hönnu og Rögnu, eftir viku á Kastrup :D... váá get ekki beðið sko.... !!! 

  

Strikið þar sem við ætlum að versla meira en allt :D... heheh :P

 

 

 

Kv. Kristín dani ;)

 

 

 

  

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 00:01:19 / skutlurnar

Fuerteventura..!!!

Stúlkur mínar ég er farin til Fuerte:D

sjáumst eftir 2vikur eða svo:D

 

hotel photo

 

Kveðja ErlaSif

 

\"hotel


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 21:47:17 / skutlurnar

...

Jæja 

Hef ekkert að gera ákvað bara að skrifa smá hérna. Allt gott að frétta af okkur stelpunum og allar á fullu að vinna !! mikil hlökkun er í okkur stelpunum sem eru að vinna saman í rammanum, því það er að koma sumarfrí LOKSINS og hættum við að vinna 6 daga vikunnar í 10 tíma. Það verður skrítið að þurfa ekki að vakna rétt fyrir 6 og fara í skemmtilega humaragallan, það mun ég aldrei gera aftur á minni lífstíð, hef ákveðið það endanlega að ég mun aldrei stíga inn í fristhús framar fékk alveg meira en nóg þetta sumar. 8| 

Allavena þá er ég að fara í sumarfrí í sirka mánuð en verð samt að vinna í skálanum eitthver kvöld og um helgar. Ég og Ragna ákváðum svo að panta okkur óvænta ferð til Danmerkur um daginn:haha:. En við förum semsagt 12 Ágúst og ætlum að vera í 6 daga. Kristín elskan verður þarna úti og ætlar að taka lest á flugvöllinn og taka á móti okkur. Ætlum við vinkonurnar að eyða þessum 6 dögum saman í Kaupmannahöfn að versla, tivolí, slappa af og erum við búnar að panta 30 stiga hita og okkur var lofað því, þannig að við náum að sóla okkur smá. Hlakka súper til að fara með þessum gellum og ég held að þetta eigi eftir að vera mega stuð.:) Þetta verður þá í fyrsta skipti sem Ég og Ragna förum eitthvað einar saman, enda er mamma búnin að tyggja það ofan í okkur að passa okkur á ljótu köllunum þarna úti hahah !  

Þessi helgi var alveg frábær. Ég, Freyja, Kristín og Ragna fórum saman í reykjavík til hennar ólafar og má segja að það hafi verið tekið mjög vel á því, Helga kom einnig og fór með okkur á Nasa sem var ótrúlega gaman ! held að hinar stelpurnar hafi bara tekið því rólega heima hjá kæró :) 

jæja alveg örugglega glatað blogg 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 16:17:39 / skutlurnar

Helgin...

Já, ákvað að segja aðeins frá helginni... Það er orðið alltof langt síðan ég bloggaði á þessari síðu:$ Ég skellti mér á bryggjudaga á Stokkseyri, fór þangað bæði kvöldin, föstudaginn og laugardaginn. Adrei hélt ég að ég færi á djamm á Stokkseyri tvö kvöld í röð...;) En þetta var rosa skemmtilegt. Við byrjuðum heima hjá Vali og allir strákarnir komu. Indíánarnir ásamt fleirum;) Allir voru í svaka stuði og við lögðum ekki af stað fyrr en um hálf 1 held ég! Karma var að spila fyrra kvöldið og þeir héldu uppi góðri stemmningu... Eftir ballið fórum við á Selfoss í Pulló! Og við vorum ekki komin heim fyrr en um 4 eða hálf 5 held ég. Þá fórum við í eftirpartý til Heiðars og þar var eitthvað af fólki að skemmta sér:) Vorum síðan komin heim um hálf 6...

Laugardagskvöldið fannst mér alveg miklu skemmtilegra!! :P  Vítamín héldu þá uppi fjörinu, ég hafði nú aldrei heyrt neitt um þá fyrr en þeir eru fínasta hljómsveit:D Ég dansaði af mér rassgatið fremst upp við sviðið ásamt Erlu mestan tíman! Svakalegt stuð bara:) Svo var komið að því að fara heim, kíktum aftur til Heiðars og Freyju en það var ekkert að gerast þar þannig að ég, Steinar, Freyja og Kristín Dís fórum í partýleit;) Fundum ekkert þannig svo að við fórum í einn garðinn að hoppa á trampólíni:!: Það endaði skelfilega, þökk sé Steinari... Hann hoppaði rétt fyrir aftan mig með þeim afleiðingum að ég kastaðist uppí loft og beint uppí hökuna á honum. Svo lá ég bara þarna þangað til hann tosaði mig upp... Meira vesenið á drengnum;) En stuttu eftir þetta var svo bara farið heim að sofa... Þetta var sem sagt mjöööög góð helgi:D

 Núna ligg ég bara inni að læra:frown: Ekki það skemmtilegasta sem ég geri, sérstaklega ekki í þessu góða veðri... Er samt hætt að læra núna og ætla að skella mér í sund:haha:

 

Unnur;) 


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 14:56:06 / skutlurnar

Smá fréttir af okkur ;)

Smá fréttir af okkur stúlkunum þar sem við höfum ekki mikinn tíma fyrir bloggheiminn þessa dagana J  

Hanna: nýkomin heim frá Norge þar sem hún gjörsamlega slefaði yfir gaurunum. Fékk ófá sms-in frá pjöllunni ,,shit hvað það eru heitir gaurar hérna”... heheh :P... annars er stúlkukindin bara að vinna úr sér allt vit í Þormóði Ramma og Skálanum !... en hún hefur nú samt verið ágætlega virk í djamminu líka ;) 

Unnur: er að vinna í Hafnarnesi, annars er hún bara að njóta lífsins með honum Vali sínum J... 

Ragna: vinnur ásamt tvíbbasystur sinni í Þormóði og Skálanum. Er síðan öðrum stundum með honum Svenna sínum eða á rúntinum með mér held ég bara ;).. hehe :P hún er voða slök í djamminu eins og ég J  

Erla: já hún Erla Sif, held ég hafi síðast hitt hana á sjómannadagsballinu eða e-ð... þvílík skömm ! :/ þannig ég veit ekki mikið meira um hana nema að hún sé að vinna í Þormóði og hina stundina er hún með honum Jóni sínum, en þau eru síðan að fara til Fuerteventura í lok júlí ;* 

Helga: skellti sér á Hróaskeldu, sannkallaður djammari. Held að hún sé lang virkust af okkur í þeim heimi J... annars vinnur hún í Hamborgarabúllu Tómasar þar sem hún er ekki meira né minna en vaktstjóri ;)... 

Kristín: það er svosem ekkert mikið að frétta af mér, er alltaf vinnandi annaðhvort á Hafinu Bláa eða humrinum J og hina stundina með honum Rúnari ;*.. er nýbúin að losna við spangirnar og brosi mínu breiðasta þessa dagana ;) hef alls ekki verið virk í djamminu. Fer síðan til dk með með familíunni að hitta ættingjana 4. ágúst þar sem ég ætla að versla af mér allt vit á Strikinu :P

 

 

  

  


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27
Annað..
Klukkan